Tómat karríréttur - Karlamatur

Þetta er einn af þeim réttum sem eru sívinsælir á mínu heimili.  Ég fann uppskrifitna í bæklingi sem ég hirti úti í búð, þar heitir hann Tómat karríréttur en á mínu heimili fékk hann heitið Karlamatur. 
Ég nota 4 bita af lambaframhrygg með beini í þennan rétt, þar sem beinin gefa aukin kraft í sósuna og karrímaukið sem ég nota heitir Mild Curry Paste frá Raja..
Þetta er kraftmikill og góður réttur sem hentar vel á köldum dögum, eða þegar mann vantar smá kraft í kroppinn.

Karlamatur


hráefni (fyrir4):
7-800 gr beinlaust lambakjöt, t.d. læri eða framhryggur
2 msk olía
1 laukur, saxaður
2 hvítlauksgeirar, pressaðir
2-3 cm bútur af engifer, saxaður smátt
3 msk rautt indversk karrímauk (einnig má nota 2 msk karríduft)
salt
1 dós tómatar, grófsaxaðir
1 rauð og 1 græn paprika, fræhreinsaðar og skornar í bita
150 ml kókosmjólk

Kjöbitarnir eru skornir í tvennt.  Olían hituð í potti og laukurinn látinn krauma í henna í nokkrar mínútur.  Hvítlauki og engifer bætt út í og steikt í u.þ.b. 2 mínútur til viðbótar.  Þá er karrímauki og salti bætt saman við, látið malla í nokkrar mínútur og hrært í á meðan.  Kjötið sett út í og hrært vel.  Tómötunum bætt í pottinn ásamt vökvanum úr dósinni, hitinn hækkaður og þegar sýður er hann lækkaður aftur og látið malla í 10-15 mínútur.  Þá er paprika og kókosmjólk hrært saman við, lok sett á pottinn og látið malla við vægan hita í um 1 klst.  Hrært öðru hverju og svolítið vatni bætt við ef uppgufun verður mikil svo sósan brenni ekki við.  Borið fram með hrísgrjónum og salati.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Thetta er örugglega rosalega gott.  Skemmtileg og gód mynd af thessum gaeda hráefnum.  Nammi namm!.  Alltaf mjög gaman ad lesa alla thína pistla.  Takk takk takk.

Forvitinn (IP-tala skráð) 11.6.2010 kl. 20:06

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband